Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 30. júní 2020 20:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Padova áfram þrátt fyrir jafntefli
Emil er kominn áfram í 2. umferð Serie C umspilsins.
Emil er kominn áfram í 2. umferð Serie C umspilsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Padova er komið áfram í aðra umferð Serie C umspilsins þrátt fyrir að hafa gert jafntefli í 1. umferð, lokatakmarkið er laust sæti í Serie B.

Liðið mætti í kvöld Sambenedettese á heimavelli og enduðu leikar 0-0. Emil Hallfreðsson er leikmaður Padova og lék hann allan leikinn á miðjunni.

Undir lok leiks fékk þjálfari gestanna að líta rauða spjaldið fyrir mótmæli.

Samkvæmt færslu Padova á Twitter og fréttar á heimasíðu félagsins dugði liðinu jafntefli í kvöld og er því komið í 2. umferð.

Liðið mætir FeralpiSalo á heimavelli á sunnudag í 2. umferðinni.
Athugasemdir
banner
banner