Fotbolti.net
30.07.04 - 10:53

Kanu til WBA (Staðfest)

Kanu til WBA (Staðfest)
Canon
West Bromwich Albion hafa fengið til sín nígersíska sóknarmanninn Kanu. Arsenal slepptu honum í sumar og því þurftu WBA ekki að borga neitt fyrir 27 ára gamlan leikmanninn.
Hann skrifaði undir þriggja ára samning en Gary Megson stjóri ætlar sér stóra hluti í vetur en Kanu eru hans sjöttu kaup í sumar. Megson vonast einnig til að Kanu verði til þess að fleiri þekkt nöfn vilji koma til félagsins.

Kanu var í fimm og hálft ár á higbury en hann lék áður með Ajax og Inter Milan. Kanu skoraði 44 mörk í 198 leikjum fyrir Arsenal og þá hefur hann unnið ýmis verðlaun á sínum ferli. Hann varð meðal annrs Ólympíumeistari með Nígeríu árið 1996 í Atlanta, Bandaríkjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.