Fotbolti.net
30.07.04 - 19:47
Hafliði Breiðfjörð

Biberdzic og tveir aðrir til Víkinga (Staðfest)

Biberdzic  til vinstri gekk í raðir Víkinga í dag, myndin er tekin á Akranesi fyrr í mánuðinum

Biberdzic til vinstri gekk í raðir Víkinga í dag, myndin er tekin á Akranesi fyrr í mánuðinum

Canon

Mynd: ia.is/kia

Sigurður Jónsson þjálfari Víkinga hefur verið á útopnu í dag við að útvega sér leikmenn fyrir lokasprettinn í Landsbankadeildinni. Óvæntustu kaupin voru á gömu markamaskínunni Mihajlo Biberdzic sem kemur frá Stjörnunni en kallinn sem hafði átt í viðræðum við fleiri lið hér á landi er orðinn 36 ára gamall og á líklega að sjá um markaskorun hjá félaginu, hvernig svo sem það gengur. Auk hans var gengið frá samningum við tvo aðra leikmenn, Broko Marinkovic sem kemur frá Servíu og Svartfjallalandi og Dejan Miljanic frá Bosnínu Herzegovínu en við greindum frá því í morgun að hann væri að æfa með félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.