30.07.04 - 20:44
Hafliði Breiðfjörð
Sinisa Mihajlovic til Inter Milan (Staðfest)




Serbneski varnarmaðurinn Sinisa Mihajlovic gekk í dag í raðir Inter Milan og gerði eins árs samning við félagið. Mihajlovic var samningslaus frá félaginu eftir að samningur hans við Lazio rann út. Hann er 35 ára gamall miðvörður en hjá Inter hittir hann fyrir Roberto Mancini fyrrum þjálfara Lazio sem hefur tekið við stjórn Inter. Seria A hefst á Ítalíu í september.
