30.08.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson
McManaman til Manchester City (staðfest)

Steve McManaman


Steve McManaman

Steve McManaman hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Manchester City eftir að hann stóðst læknisskoðun í dag. McManaman kemur frá Real Madrid en hann var leystur undan samningi þaðan nú í sumar.
Þessi enski miðvallarleikmaður mun leika á ný með gömlum félaga en eins og margir vita þá léku McManaman og Robbie Fowler saman í Liverpool fyrir nokkrum árum.
McManaman mun ekki leika með City gegn Arsenal á morgun og er líklegt að fyrsti leikur hans verði gegn Aston Villa þann 14. september.
McManaman mun ekki leika með City gegn Arsenal á morgun og er líklegt að fyrsti leikur hans verði gegn Aston Villa þann 14. september.
