30.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Julio Cruz til Inter (Staðfest) og fleiri fréttir af Inter.

Julio Cruz í Bologna treyjunni.


Julio Cruz í Bologna treyjunni.

Inter Milan hefur fengið Argentíska framherjann Julio Cruz frá Bologna. Kapverðið fékkst ekki uppgefið en Cruz skrifaði undir þriggja ára samning við Inter. Cruz á að fylla skarðið sem að Hernan Crespo skilur eftir sér en hann er farinn eins og flestir vita til Chelsea. Cruz sem er fyrrum leikmaður River Plate skoraði alls 27 mörk á 3 tímabilum með Bologna.
Annar framherji hjá Inter, Nicola Ventola hefur hinsvegar farið til Siena og mun vera þar að láni út þetta tímabil.
Bologna hefur einnig fundið arftaka Cruz en það er Albaníumaðurinn Igli Tare sem kemur frá Brescia.
Bologna hefur einnig fundið arftaka Cruz en það er Albaníumaðurinn Igli Tare sem kemur frá Brescia.
