Fotbolti.net
30.08.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson

Zenden til Boro (staðfest)

Zenden til Boro (staðfest)
Canon
Middlesborough hafa fengið Hollendinginn, Boudewijn Zenden, til sín á lánssamningi út leiktíðina. Forráðamenn Boro tilkynntu þetta aðeins nokkrum mínútum áður en leikur þeirra gegn Leeds hófst í dag.
Zenden kemur til Boro frá Chelsea en hann hefur ekki fengið að spreyta sig með liðinu það sem af er þessari leiktíð. Zenden kom til Chelsea frá Barcelona fyrir 7,5 milljónir punda árið 2001 en hann hóf feril sinn hjá PSV Eindhoven í Hollandi.

Þetta tímabundna brotthvarf Zenden frá Chelsea kemur ekki mikið á óvart þar sem að landsliðsþjálfari Hollands talaði um það fyrir skömmu að leikmenn eins og Zenden þyrftu að spila reglulega til að eiga möguleika á að leika með Hollendingum á EM 2004.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.