30.08.04 - 08:43
Magnús Már Einarsson
Portsmouth fær framherja (Staðfest)

Nýr félagi í hópinn.


Nýr félagi í hópinn.

Portsmouth hefur keypt senegalska framherjann Diomansy Kamara frá ítalska liðinu Modena á tvær milljónir punda. Kamara sem að er 23 ára átti fyrst að fara á láni til Portsmouth en nú hefur hann verið seldur til liðsins og skrifað undir þriggja ára samning við það.
Kappinn sem að fæddist í París skoraði ellefu mörk í 57 leikjum með Modena. Kamara mun ekki leika með Portsmouth gegn Fulham í kvöld en verður kynntur sem nýr leikmaður liðsins á leiknum.
