Fotbolti.net
30.08.04 - 16:12
Elvar Geir Magnússon

Jorgensen til Fiorentina (Staðfest)

Jorgensen til Fiorentina (Staðfest)
Canon
Ítalska liðið Fiorentina hefur keypt danska miðjumanninn Martin Jorgensen frá keppinautum sínum í Seríu-A, Udinese. Þetta var tilkynnt í morgun en Udinese mun þó enn eiga hlut í leikmanninum. Spennandi verður að sjá hvernig Fiorentina kemur til leiks á Ítalíu þetta leiktímabil en langt er síðan félagið spilaði í efstu deild.
Jorgensen mun vafalítið styrkja liðið mikið en hann hefur spilað með Udinese síðan 1997. Hann er 28 ára og spilar venjulega á vinstri kantinum. Hann bætist nú í hóp nýrra leikmanna Fiorentina en áður hafa japaninn Hidetoshi Nakata og tékkneski varnarmaðurinn Tomas Ujfalusi skrifað undir samninga við félagið.

Keppnistímabilið á Ítalíu hefst 12.september.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.