Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. september 2020 10:56
Magnús Már Einarsson
Brynjar Ingi framlengir við KA - Erlend félög hafa áhuga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason hefur framlengt samning sinn við KA út tímabilið 2023.

„Þetta eru gríðarlega góðar fréttir enda hefur Brynjar verið frábær í vörn KA í sumar og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér," segir á heimasíðu KA.

„Þá hefur Brynjar Ingi hlotið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína í hjarta varnarinnar hjá KA í sumar og hafa erlend lið sýnt áhuga á kappanum."

Brynjar Ingi er 21 árs gamall og er uppalinn í KA. Hann hefur verið viðloðandi U-21 árs landslið Íslands undanfarin ár og leikið alla leiki KA í sumar, 16 í Pepsi Max deildinni og tvo í Mjólkurbikarnum og gert í þeim tvö mörk.

Alls hefur hann leikið 32 meistaraflokksleiki fyrir KA en hann hefur einnig leikið 18 leiki með Magna og einn fyrir Einherja á láni.

Athugasemdir
banner
banner