Fotbolti.net
30.11.21 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England í dag - Tekst Newcastle að spyrna sér frá botninum?

Stuðningsmenn Newcastle fögnuðu yfirtöku Bin Salman en það gæti þó tekið lengri tíma að byggja upp liðið ef það fer ekki að safna stigum bráðlega

Stuðningsmenn Newcastle fögnuðu yfirtöku Bin Salman en það gæti þó tekið lengri tíma að byggja upp liðið ef það fer ekki að safna stigum bráðlega

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United mætir Norwich City í botnslag í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leikur þeirra hefst klukkan 19:30. Leeds og Crystal Palace eigast þá við klukkan 20:15.
Mohamed Bin Salman keypti Newcastle fyrir 300 milljónir punda og ætlar að eyða miklum peningum í félagið en það virðist mikil þörf á því enda er liðið í botnsætinu með aðeins 6 stig.

Erfið dagskrá er framundan og eitt er ljóst: Liðið þarf stigin, að minnsta kosti fram að janúar þegar Eddie Howe getur farið að eyða peningum í nýja leikmenn. Norwich er í 19. sæti með 9 stig.

Leeds spilar þá við Crystal Palace klukkan 20:15. Leeds hefur aðeins unnið tvo leiki af síðustu níu. Undir stjórn Patrick Vieira hefur Palace aðeins tapað þremur leikjum í deildinni á þessu tímabili og má því búast við hörkuleik á Elland Road.

Leikir dagsins:
19:30 Newcastle - Norwich
20:15 Leeds - Crystal Palace

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton11+217
8Chelsea11016
9Brentford11+515
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.