Fotbolti.net
30.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Verpakovskis til Dynamo Kiev. (Staðfest)

Verpakovskis að skora gegn Tyrkjum.

Verpakovskis að skora gegn Tyrkjum.

Canon
Sóknarmaðurinn Maris Verpakovskis frá Lettlandi hefur samið við úkraínska liðið Dynamo Kiev. Verpakovskis sló í gegn með Lettum í undankeppni EM og og þá sérstaklega þegar að hann skoraði tvö mörk í umspilsleikjunum gegn Tyrkjum í haust. Þessi 24 ára framherji kemur frá Skonto Riga þar sem að hann skoraði 47 mörk í 93 leikjum og vann ásamt félögum sínum fjóra deildarmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Verpakovskis sem skrifaði undir fimm ára samning við Dynamo Kiev en hann á að baki 28 leiki með Lettum og skorað tíu mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.