30.12.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Viktor B. Arnarson í Víking. (Staðfest)


Mynd: Merki


Mynd: Merki
Það er ekki bara KR sem er í áramótagjöfum til stuðningsmanna sinna en Viktor Bjarki Arnarson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Víkinga og mun því leika með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Viktor fékk sig lausan undan samning við Topp Oss í Hollandi til að geta gengið í raðir síns gamla liðs, Víkinga. Viktor sem er tvítugur hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslendinga.
