Luis Díaz er byrjaður að æfa með Liverpool eftir langa fjarveru vegna hnémeiðsla. Hann meiddist í leiknum gegn Arsenal í október og hefur ekkert verið með síðan.
„Hann er kominn til baka í hluta af æfingunum eftir langan tíma frá," sagði Jurgen Klopp á fréttamannafundi í dag.
„Hann er kominn til baka í hluta af æfingunum eftir langan tíma frá," sagði Jurgen Klopp á fréttamannafundi í dag.
„Það er frábært að fá hann til baka. Hann er þvílík orkusprauta, það er innspýting að hafa hann í kringum hópinn. Hann mun ekki æfa með okkur í dag, þessi vika var eitt skref í átt að því að taka fullan þátt í æfingum."
„Hann tók hluta af æfingum, í næstu viku munum við líklega hækka hann upp í að taka fullar æfingar og svo verður hann klár. En við verðum að meta hann dag frá degi og sjá hvernig hann tekur í aukið álag," sagði Klopp.
Liverpool mætir Manchester City í stórleik helgarinnar í úrvalsdeildinni á morgun. Leikurinn hefst klukkan 11:30 á íslenskum tíma.
Athugasemdir