Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
laugardagur 20. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
þriðjudagur 31. mars
Vináttuleikur
Korea DPR U-23 3 - 1 Thailand U-23
China PR U-20 2 - 4 Australia U-20
Kosta Ríka 0 - 5 Íran
Morocco U-18 - Iceland U-19 - 12:00
Palestine 0 - 0 Máritanía
India U-23 0 - 1 Tajikistan U-23
Portugal U-18 1 - 0 USA U-18
Miðbaugs Gínea 1 - 1 Madagascar
Liberia - Libya - 15:00
Svartfjallaland - Slóvenía - 16:00
Niger - Togo - 16:00
Noregur - Sviss - 16:00
San Marino - Andorra - 16:00
Serbía - Sádí Arabía - 16:00
Haiti - Ísland - 16:30
Ungverjaland - Grikkland - 17:00
Jordan - Nígería - 17:30
Rússland - Malí - 17:00
Suður-Afríka - Panama - 17:30
Brazil U-20 - Paraguay U-20 - 19:00
Gínea - Benin - 18:00
Marokkó - Paragvæ - 18:00
Perú - Honduras - 18:00
Skotland - Fílabeinsströndin - 18:30
Austurríki - Suður Kórea - 18:45
England - Japan - 18:45
Holland - Ekvador - 18:45
Búrkína Fasó - Guinea Bissau - 19:00
Senegal - Gambía - 19:00
Spánn - Egyptaland - 19:00
Alsír - Úrúgvæ - 18:30
Bandaríkin - Portúgal - 23:00
Argentína - Sambía - 23:15
Kanada - Túnis - 23:30
Brasilía - Króatía - 00:00
Mexíkó - Belgía - 01:00
United Arab Emirates U-23 - Oman U-23 - 13:45
Egypt U-20 0 - 0 Algeria U-20
Úkraína - Albanía - 18:45
Írland - Norður Makedónía - 18:45
Slóvakía - Rúmenía - 18:45
Wales - Norður Írland - 18:45
Botswana 0 - 0 Malaví
Chile U-20 - Peru U-20 - 14:30
Simbabve - Zambia U-23 - 16:00
HM umspil
Bosnía - Ítalía - 18:45
Tékkland - Danmörk - 18:45
Kósóvó - Tyrkland - 18:45
Svíþjóð - Pólland - 18:45
þri 31.mar 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 4. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að ÍA muni enda í 4. sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. ÍA verður í baráttu um Evrópusæti ef spáin rætist.

ÍA fagnar marki á síðasta tímabili.
ÍA fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lárus Orri tók við ÍA á miðju síðasta tímabili.
Lárus Orri tók við ÍA á miðju síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már var mjög sterkur á síðustu leiktíð.
Rúnar Már var mjög sterkur á síðustu leiktíð.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gísli Eyjólfs er mættur á Skagann.
Gísli Eyjólfs er mættur á Skagann.
Mynd/ÍA
Gummi Tóta er kominn í ÍA eftir mörg ár í atvinnumennsku.
Gummi Tóta er kominn í ÍA eftir mörg ár í atvinnumennsku.
Mynd/ÍA
ÍA keypti Böðvar frá FH.
ÍA keypti Böðvar frá FH.
Mynd/ÍA
Viktor Jóns hefur sýnt að hann getur skorað mörk í Bestu deildinni.
Viktor Jóns hefur sýnt að hann getur skorað mörk í Bestu deildinni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erik Tobias Sandberg þarf að stíga upp frá síðustu leiktíð.
Erik Tobias Sandberg þarf að stíga upp frá síðustu leiktíð.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gabríel Snær er gífurlega efnilegur leikmaður.
Gabríel Snær er gífurlega efnilegur leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukur Andri er af miklum fótboltaættum.
Haukur Andri er af miklum fótboltaættum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bakvörðurinn Jón Gísli Eyland.
Bakvörðurinn Jón Gísli Eyland.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steinar Þorsteinsson er einn vanmetnasti leikmaður deildarinnar.
Steinar Þorsteinsson er einn vanmetnasti leikmaður deildarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir ÍA í sumar?
Hvað gerir ÍA í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ÍA, 102 stig
5. KR, 90 stig
6. Valur, 88 stig
7. KA, 74 stig
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig

Um liðið: Síðasta tímabil var nokkuð mikil rússíbanareið fyrir Skagamenn. Menn voru borubrattir áður en leiktíðin hófst en fljótlega fór andrúmsloftið að súrna. Um mitt sumar sat ÍA á botni deildarinnar og þá var ákveðið að ráðast í þjálfarabreytingar. Lárus Orri Sigurðsson, sem hafði getið sér gott orð sem sérfræðingur í kringum Bestu deildina í sjónvarpinu, tók við liðinu og þétti raðirnar. ÍA bjargaði sér að lokum þægilega frá falli en vonbrigðin voru samt til staðar þar sem væntingarnar fyrir sumarið voru miklar. Í vetur hefur ÍA farið hafmförum á leikmannamarkaðnum og aftur eru væntingarnar komnar upp í hæstu hæðir. Núna er að sjá hvort menn mæti almennilega til leiks þetta sumarið því Skagamönnum dreymir um að sjá sitt lið aftur í Evrópukeppni eftir langa fjarveru þaðan.

Þjálfarinn: Það kom mörgum á óvart þegar Lárus Orri Sigurðsson var ráðinn þjálfari ÍA um mitt síðasta sumar enda hafði hann ekki þjálfað þá í sjö ár um það bil. Mikið var rætt og ritað um Jóhannes Karl Guðjónsson þegar Jón Þór Hauksson var látinn taka pokann sinn en það tókst ekki að landa honum frá Danmörku. Því var Lárus Orri ráðinn og hann sýndi hvers megnugur hann er. Lárus Orri ólst upp á Akranesi og lék með yngri flokkum ÍA við góðan orðstír allt þar til hann flutti til Akureyrar á unglingsaldri. Þar lék hann með meistaraflokki Þórs í nokkur ár. Hann átti magnaðan atvinnumannaferil í Englandi sem spannaði 10 ár þar sem hann lék með Stoke og WBA, bæði í Championship deildinni og Premier League. Lárus, sem er harður í horn að taka, spilaði þá 42 landsleiki fyrir Íslands hönd og þjálfaði Þór og KF áður en hann tók við ÍA eftir gott frí úr þjálfunarbransanum.

Styrkleikar: ÍA hefur bætt við sig miklum gæðaleikmönnum í félagaskiptaglugganum og á blaði er leikmannahópur Skagamanna orðinn mjög álitlegur. Það hefur bæst mikil reynsla við hópinn og eru að koma inn leikmenn með ferla í atvinnumennsku og Íslandsmeistaratitla á bakinu. Það er greinilegt að menn eru að leggja mikið í þetta á bak við tjöldin á Akranesi og er það mikill styrkleiki hversu mikill metnaðurinn er orðinn. Þessir nýju leikmenn sem eru komnir inn ættu að geta lyft boltanum á Akranesi upp á næsta plan. Það var mikil samheldni í liðinu eftir að Lárus Orri tók við og það er mikilvægt fyrir Skagamenn að halda henni í hámarki þegar gengið er inn í nýtt sumar.

Veikleikar: Menn voru talaðir upp til skýjanna fyrir síðasta tímabil og það virðist hafa haft áhrif á einhverja leikmenn innan hópsins og kannski einhverja utan hans líka. Menn verða að vera á tánum og halda sér á jörðinni þó liðinu sé spáð góðu gengi. Pressan á Skaganum er mikil og það er talað um fátt annað en fótbolta í bænum, en það getur pressa fylgt því. Liðið byrjaði síðasta tímabil skelfilega og verða menn að bæta upp fyrir það í sumar. Það var mikið talað um það í fyrra að Viktor Jónsson saknaði þess að hafa Hinrik Harðarson sér við hlið og það vantar kannski aðeins meira fútt í fremstu stöðurnar. Lárus Orri gerði frábærlega þegar hann tók við liðinu á síðasta tímabili en sem þjálfari hjá liði sem ætlar sér að vera í Evrópubaráttu, og jafnvel meira, þá er hann ákveðið spurningamerki. Hann á eftir að sanna sig almennilega.

Lykilmenn: Rúnar Már Sigurjónsson og Gísli Eyjólfsson
Rúnar Már steig heldur betur upp þegar ÍA þurfti á honum að halda síðasta sumar. Hann var mikið meiddur tímabilið á undan en kom sterkur inn á síðustu leiktíð og var sérlega góður þegar hann færðist aftar í miðvörðinn seint á tímabilinu. Með mikla reynslu og mikil gæði sem hjálpar Skagaliðinu talsvert. Það var þá risastórt þegar ÍA krækti í Gísla Eyjólfsson eftir að hafa reynt það lengi. Gísli var einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar í mörg ár áður en hann fór út í atvinnumennsku til Svíþjóðar. Hann hefur spilað lengst af á sínum ferli með Breiðabliki en mætir núna gulur og glaður inn í þetta mót.

Gaman að fylgjast með: Gabríel Snær Gunnarsson
Hann verður því miður ekki lengi í Bestu deildinni í sumar þar sem hann er á leið til Svíþjóðar, til Elfsborg. Þessi gríðarlega efnilegi sóknarmaður hefur verið iðinn við kolann á undirbúningstímabilinu og kemur til með að fá eitthvað hlutverk áður en hann fer erlendis. Hann hefur ekk langt að sækja markaskóna því faðir hans er fyrrum landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson.

Spurningarnar: Læra menn af síðasta tímabili? Verður pressan of mikil? Bætist Tryggvi Hrafn við hópinn?

Völlurinn: ELKEM völlurinn á Akranesi er einn af þremur völlum deildarinnar sem er með náttúrulegt gras. Það er ótrúleg saga þarna og margir bikarar sem hafa farið á loft, en það er alltof langt síðan síðast. Þarna hafa unnist Íslandsmeistaratitlar og stemningin getur verið mögnuð ef það gengur vel.

Komnir:
Gísli Eyjólfsson frá Halmstad
Guðmundur Þórarinsson frá Noah
Böðvar Böðvarsson frá FH
Rafael Máni Þrastarson frá Fjölni
Markús Páll Ellertsson frá Ítalíu
Hilmar Elís Hilmarsson frá Fjölni (var á láni)

Farnir:
Albert Hafsteinsson
Marko Vardic til Grikklands
Hlynur Sævar Jónsson í Fylki
Guðfinnur Þór Leósson í Fylki
Jonas Gemmer til Danmerkur
Jón Sölvi Símonarson í Breiðablik (var á láni)
Ármann Ingi Finnbogason seldur til Víkings (var á láni hjá Grindavík)
Arnleifur Hjörleifsson alfarið í Njarðvík (var á láni)
Ingi Þór Sigurðsson seldur til Grindavíkur (var á láni)
Árni Salvar Heimisson (var á láni hjá Grindavík)



Leikmannalisti:
1. Árni Marínó Einarsson (m)
12. Logi Mar Hjaltested (m)
3. Johannes Bjorn Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson
9. Viktor Jónsson
10. Steinar Þorsteinsson
11. Gísli Eyjólfsson
13. Erik Tobias Sandberg
15. Gabríel Snær Gunnarsson
16. Rúnar Már Sigurjónsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
18. Rafael Máni Þrastarson
20. Ísak Máni Guðjónsson
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ómar Björn Stefánsson
23. Daníel Michal Grzegorzsson
26. Matthías Daði Gunnarsson
27. Brynjar Óðinn Atlason
28. Birkir Hrafn Samúelsson
32. Jón Breki Guðmundsson
33. Arnór Valur Ágústsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
87. Styrmir Jóhann Ellertsson
Markús Páll Ellertsson
Hilmar Elís Hilmarsson
Birkir Breki Burknason

Fyrstu fimm leikir ÍA:
12. apríl, Fram - ÍA (Lambhagavöllurinn)
17. apríl, Breiðablik - ÍA (Kópavogsvöllur)
22. apríl, ÍA - KA (ELKEM völlurinn)
27. apríl, Víkingur R. - ÍA (Víkingsvöllur)
3. maí, ÍA - Stjarnan (ELKEM völlurinn)

Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
Athugasemdir
banner
banner