Mark Bosnich var til viðtals í nýjasta þætti Steve Dagskrá. Bosnich er fyrrum markvörður Manchester United, Aston Villa og Chelsea.
Sjá einnig:
Bosnich við Steve Dagskrá: Sir Alex hafði rangt fyrir sér
Sjá einnig:
Bosnich við Steve Dagskrá: Sir Alex hafði rangt fyrir sér
Bosnich var spurður út í Eið Smára Guðjohnsen því þeir voru liðsfélagar hjá Chelsea.
„Eiður var stórkoslegur leikmaður. Hann á skilið alla þá virðingu sem hann fær því hann var frábær. Hann fór líka til Barcelona, það segir í rauninni sjálft að hann var stórkostlegur [því Barcelona á þeim tíma var með frábært lið]."
„Þegar kom að því að klára færin var Eiður stórkostlegur. Eiður var einn af þeim á æfingum sem var nær ómögulegt að verja frá."
Hlusta má á þáttinn í heild sinni hér að neðan.
Athugasemdir