Fotbolti.net
31.07.04 - 11:48
Hafliði Breiðfjörð

Zenden til Middlesbrough (Staðfest)

Zenden til Middlesbrough (Staðfest)
Canon
Chelsea hefur leyst hollenska landsliðsmanninn Boudewijn Zenden undan samningi og leikmaðurinn hefur samið við Middlesbrough. Zenden lék með Boro á síðustu leiktíð á láni frá Chelsea og hefur verið í viðræðum við félagið um áframhaldandi samningi.
Á opinberri vefsíðu Chelsea var svo staðfest snemma í morgun að leikmaðurinn hafi náð samkomulagi við Middlesbrough. Zenden lék 59 leiki með Chelsea, 30 þeirra í byrjunarliði. Hann skoraði fjögur mörk á tíma sínum þar.

Hann var keyptur árið 2001 frá Barcelona á 7,5 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.