Við greindum frá því í dag að Leeds væru á höttunum á eftir Cyril Chapuis, framherja frá Marseille. Nú er svo komið á daginn að liðsfélagi Chapuis, miðvallarleikmaðurinn Salomon Olembe, hefur skrifað undir lánssamning út þessa leiktíð. Einnig er innifalið í samningnum að Leeds hafi forgangsrétt á að kaupa hann eftir að samningur hans rennur út. Olembe er 22 ára gamall og er frá Kamerún. Áður en hann hóf að leika með Marseille lék hann með franska liðinu Nantes.