31.08.04 - 07:12
Calum Davenport til Tottenham (Staðfest)

Tottenham hafa staðfest kaupin á Calum Davenport. Hann er 21 árs gamall piltur sem kostar Lundúnarliðið 1,1 milljón punda. Reyndar gæti verðið hækkað upp í 3 milljónir en það fer eftir leikjum sem hann spilar.
Davenport hefur lengi verið orðaður við liðið og nú er loksins búið að ganga frá samningunum. Hann er landsliðsmaður u-21 árs lið Englendinga og er mjög efnilegur. Hann er 11 leikmaðurinn sem Tottenham kaupir síðan David Pleat fór frá liðinu á síðasta tímabili.
Coventry menn sögðu að þeir væru mjög leiðir yfir því að missa Davenport en þeir hefðu ekki getað neitað honum um úrvalsdeildarbolta. Ljóst er að Tottenham ætla sér stóra hluti í vetur og verður spennandi að sjá hvað Jaques Santini gerir með liðið.