Fotbolti.net
31.08.04 - 09:38
Hafliði Breiðfjörð

Þetta er að skella á...

Hvað verður um Zlatan?

Hvað verður um Zlatan?

Canon
Dagurinn í dag er síðasti séns fyrir liðin í Evrópu að styrkja sig en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti. Stærstu félagaskiptin verða án efa hjá Wayne Rooney sem fer að öllum líkindum til Manchester United en einnig verður fróðlegt að sjá hvað er að gerast hjá Zlatan Ibrahimovic leikmann Ajax en félagið hefur staðfest að það sé í viðræðum við stórt félag. Við munum fylgjast vel með öllu sem gerist og má búast við mörgum fréttum í dag með (Staðfest) aftan við fyrirsögnina en það merkir að félagaskiptin séu frágengin og staðfest opinberlega. Félagaskiptaglugginn opnar svo að nýju 1. janúar.
Við Íslendingar höfum líklega beðið mest eftir að sjá hvað verður um Ólaf Inga Skúlason leikmann Arsenal en búist hafði verið við að hann yrði lánaður frá félaginu til áramóta hið minnsta. Við getum sagt ykkur frá því að líklega verður ekkert klárað strax í dag en enn verður leyfilegt að lána leikmenn til neðrideildarliða í Englandi og líklegt að Ólafur fari þangað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.