Fotbolti.net
31.08.04 - 14:32
Hafliði Breiðfjörð

Rudi Völler tekur við AS Roma (Staðfest)

Rudi Völler tekur við AS Roma (Staðfest)
Canon
Rudi Völler fyrrum landsliðsþjálfari þýska landsliðsins tók í dag við starfi knattspyrnustjóra Roma á Ítalíu í kjölfar þess að Cesare Prandelli hætti með liðið. Völler flaug til Rómar í morgun og tók strax við sinni fyrstu æfingu hjá liðinu en félagið sagði að hann myndi svo halda blaðamannafund klukkan 17:30 á æfingasvæði félagsins.
Prandelli hætti með liðið í mánuðinum þar sem eiginkona hans er mikið veik og þrátt fyrir að hafa fengið góða umhugsunarfrest frá Roma ákvað hann að hætta. Völler hætti með þýska landsliðið eftir EM í sumar eftir lélegt gegni Þjóðverja.

Hann var leikmaður Roma frá 1987-1991.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.