31.08.04 - 14:37
Hafliði Breiðfjörð
Luis Fabiano til Porto (Staðfest)




Evrópumeistarar Porto keyptu í dag brasilíska framherjann Luis Fabiano frá Sao Paulo í Brasilíu. Kaupverð var ekki gefið upp en Fabiano er 23 ára gamall og betur þekktur sem ,,The FAbulous" eða ,,Hinn stórkostlegi". Hann er nýjustu kaup félagsins í sumar og kemur í kjölfar landa síns Diego sem gerði fimm ára samning í síðasta mánuði í kjölfar þetta að hafa verið keyptur á 7 milljónir Evra.
Meðal annarra kaupa Porto í sumar hafa verið gríski landsliðsvarnarmaðurinn Yourkas Seitaridis, Brasilíski varnamaðurinn Pepe, miðjumaðurinn Hugo Leal, Ricardo Quaresma og framherjinn Helder Postiga. Félagið hefur selt leikmenn fyrir 70 milljónir Evra eftir að hafa unnið Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð
