31.08.04 - 15:17
Hafliði Breiðfjörð
Cannavaro og Zlatan til Juventus (Staðfest)




Juventus gengu í dag frá kaupum á Zlatan Ibrahimovic frá Ajax og Fabio Cannavaro frá Inter Milan. Í síðari samningnum fer markvörðurinn Fabian Carini í hina áttina en Carini hefur verið á láni frá Juve undanfarin tvö ár en átti frábæra leiki sem hann spilaði með Juventus fram að því.
Ibrahimovic mun vera keyptur á 19 milljónir Evra (12,5 milljónir punda) og gerði fjögurra ára samning við félagið. Hann skoraði 13 mörk í 16 leikjum fyrir Ajax á síðustu leiktíð en hann var keyptur til Ajax frá Malmö árið 2001.
Cannavaro gerði þriggja ára samning við félagið en búist hafði verið við þeim félagaskiptum þó gengið hafi verið frá þeim í dag.
Cannavaro gerði þriggja ára samning við félagið en búist hafði verið við þeim félagaskiptum þó gengið hafi verið frá þeim í dag.
