Fotbolti.net
31.08.04 - 18:47
Elvar Geir Magnússon

Mezague til Portsmouth (Staðfest)

Mezague til Portsmouth (Staðfest)
Canon
Portsmouth hefur fengið landsliðsmann frá Kamerún til liðs við sig. Það er miðjumaðurinn Valery Mezague sem er 21.árs og verður á láni hjá Portsmouth út leiktímabilið frá franska liðinu Montpellier. Innifalið í samningnum er að Portsmouth fær forkaupsrétt á leikmanninum.
"Hann er mjög sterkur og ungur miðjumaður sem mun auka breidd okkar á því svæði. Samkeppnin um stöður á miðjunni mun verða harðari og við verðum komnir með mjög sterkt lið þegar Amdy Faye og Aliou Cisse geta farið að spila á ný." sagði Harry Redknapp framkvæmdarstjóri Portsmouth í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.