31.08.04 - 19:03
Elvar Geir Magnússon
Mido kominn til Roma (Staðfest)

Mido bætist í þennan föngulega hóp.


Mido bætist í þennan föngulega hóp.

Ítalska liðið Roma hefur keypt sóknarmanninn Ahmed Hossam Mido frá franska liðinu Olympique Marseille. Þessi 21.árs egypski leikmaður kostaði sex milljónir evra en hann gekk til liðs við Marseille á síðasta ári eftir að hafa verið áður í herbúðum Ajax Amsterdam og Celta Vigo á Spáni.
Mido hefur þurft að kljást við meiðsli en hann tjáði franska liðinu það að hann vildi fara. Hann hefur nú skrifað undir fimm ára samning við Roma og mun því spila undir stjórn hins þýska Rudi Voeller sem var fyrr í dag ráðinn þjálfari liðsins í stað Cesare Prandelli sem hætti af persónulegum ástæðum.
Keppni í efstu deild á Ítalíu hefst 11.september.
Keppni í efstu deild á Ítalíu hefst 11.september.
