Fotbolti.net
31.08.04 - 19:29
Elvar Geir Magnússon

Fiorentina kaupir Miccoli frá Juve (Staðfest)

Fiorentina kaupir Miccoli frá Juve (Staðfest)
Canon
Fiorentina hefur keypt ítalska landsliðsmanninn Fabrizio Miccoli frá Juventus. Miccoli er sóknarmaður sem m.a. kom með ítalska landsliðinu hingað til lands og skrifaði hann undir þriggja ára samning við Fiorentina. Hann gerði garðinn frægan með Perugia áður en hann gekk til liðs við Juve fyrir síðasta tímabil.
Eins og við greindum frá fyrr í dag þá hefur Juventus fengið töframanninn Zlatan Ibrahimovic frá Ajax og því lítið pláss fyrir Miccoli hjá liðinu. Fiorentina hefur keypt fjölmarga leikmenn fyrir komandi tímabil og ætlar liðið sér greinilega stóra hluti. Í gær fengu þeir hinn danska Martin Jorgensen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.