Fotbolti.net
31.08.04 - 19:46
Elvar Geir Magnússon

Maccarone til Parma (Staðfest)

Maccarone til Parma (Staðfest)
Canon
Sóknarmaðurinn Massimo Maccarone hjá Middlesbrough mun leika með Parma út þessa leiktíð á lánssamningi. Þessi fyrrum ítalski landsliðsmaður hefur loksins snúið aftur heim og mun hitta fyrir þjálfarann Silvio Baldini sem stýrði Empoli þegar hann var hjá félaginu.
Hver veit nema þessi félagaskipti verði til þess að Maccarone vinni sér inn sæti í landsliði Ítalíu á nýjan leik. "Ef ég legg hart að mér þá á ég möguleika á að komast aftur í landsliðið. En lykilatriði í því er að spila vel fyrir Parma og það ætla ég mér svo sannarlega að gera." sagði Maccarone nú í kvöld.

Öll staðfest félagaskipti sem við höfum greint frá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.