Fotbolti.net
31.08.04 - 19:59

Crystal Palace fær Ventola og Sorondo (Staðfest)

Crystal Palace fær Ventola og Sorondo (Staðfest)
Canon
Ítalski framherjinn Nicola Ventola og Úrugvæski varnarmaðurinn Gonzalo Sorondo eru komnir til Crystal Palace frá Inter á Ítalíu. Talsmaður Inter staðfesti þetta en báðir koma á lánssamningum út tímabilið.
Ventola var eitt sinn u-21 árs landsliðsmaður Ítala og var í láni hjá Siena á síðasta tímabili. Hann átti litla möguleika á að komast í framlínu Inter með þá Christian Vieri og hinn sjóðheita Adriano í sömu stöðum. Ventola var áður að láni hjá Bolognia og Atalanta.

Miðvörðurinn Sorondo var einnig í láni á íðustu leiktíð, hjá belgíska félaginu Standar Liege. Hann átti erfitt uppdráttar á Ítalíu eftir að hann kom þangað frá Úrugvæska liðinu Defensor Sporting árið 2002.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.