Fotbolti.net
31.08.04 - 20:10

Wiltord til Lyon (Staðfest)

Wiltord til Lyon (Staðfest)
Canon
Olympique Lyon hafa fengið Sylvain Wiltord til sín í frjálsri sölu. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við franska liðið þar sem ákvæði er um eitt ár í viðbót ef liðið óskar þess.
Þessi þrítugi landslisðmaður Frakka var látinn fara frá Arsenal eftir síðasta tímabil og ehfur verið að leita sér að félagi í allt sumar. Hann æfði með Rennes í Frakklandi til að halda sér í formi í sumar og var orðaður við mjög mörg lið í sumar þar á meðal Liverpool, AC Milan, Paris St. Germain, Tottenham og fleiri.

Ég hafði áhuga á að koma hingað af því að ég hef gaman af því að spila með klúbbum sem vinna titla” saði Wiltord blákaldur. “Ég vona að við förum mjög langt í Meistaradeildinni. Ég er líka viss um að liðið hefur krafta til að vinna fjórða titilinn hér heima” bætti hann við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.