Fotbolti.net
31.12.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Petta til Fulham. (Staðfest)

Petta til Fulham. (Staðfest)
Canon
Chris Coleman stjóri Fulham gekk í morgun frá lánssamningi á Bobby Petta miðvallarleikmanni Celtic út tímabilið. Coleman hefur verið lofað að hann fái peninga frá eigandanum, Mohamed al Fayed til að styrkja hópinn í félagsskiptaglugganum. ,,Ég er ánægður að við höfum náð Bobby út tímabilið." sagði Coleman í dag. ,,Hann hefur sannað ágæti sitt sem mun gefa okkur mikilvægan styrk og dýpt í leikmannahópinn. Ég efast ekki um að hann mun aðstoða okkur næstu mánuði."
Petta sem er fæddur í Rotterdam hóf ferilinn með Feyenoord og gekk í raðir Celtic á frjálsri sölu frá Ipswich árið 1999. Hann hefur hinsvegar varla spilað neitt með Celtic á tímabilinu og var því leyft að fara. Coleman mun líklega fá fleiri leikmenn til félagsins á næstu vikum.

Al Fayed sagði: ,,Ég hef verið að ræða við Chris síðustu vikur um að styrkja hópinn á ákveðnum svæðum. Okkur hlakkar til að byggja upp fyrir framtíðina og ég hef boðið honum pening til að styrkja liðið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.