Fotbolti.net
31.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Roberto Bonano til Murcia (Staðfest)




Murcia næstneðsta liðið í La Liga hefur fengið góðan liðsstyrk því að argentíski markvörðurinn Roberto Bonano hefur gengið til liðs við liðið frá Barcelona.  Bonano sem er 33 ára hefur ekki einu sinni fengið að æfa með Barcelona í vetur og hefur æft einn í sex mánuði.  Murcia fær hann því frítt en Bonano kom til Barcelona frá River Plate fyrir þremur árum.  Bonano er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Murcia en eins og við greindum frá í gær komu varnarmaðurinn Ivan Hurtado og miðjumaðurinn Leonel Gancedo til liðsins fyrr í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.