Fotbolti.net
31.12.09 - 15:08
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Luca Toni lánaður til Roma fram á sumar (Staðfest)

Luca Toni lánaður til Roma fram á sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur komist að samkomulagi um að fá ítalska framherjann Luca Toni á láni frá Bayern Munchen í Þýskalandi næstu sex mánuðina.
Ítalska félagið tilkynnti þetta í yfirlýsingu nú í dag en Toni mun koma frítt til félagsins fram til 30. júní ef hann kemst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu.

Hann er 32 ára gamall og hefur ekki verið í myndinni hjá Louis van Gaal þjálfara Bayern síðan þeim lenti saman fyrr á tímabilinu.

Toni sagði að Roma hafi verið eina liðið sem hann vildi fara til þrátt fyrir áhuga fjölda féalga á Ítalíu og á Englandi. Hann vonast til að með skiptunum eigin hann góða möguleika í HM hópi Ítalíu.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.