Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. ágúst 2010 21:23
Magnús Már Einarsson
Umfjöllun: Grindvíkingar sóttu þrjú stig í rokleik í Eyjum
Andri Ólafsson með boltann í leiknum í kvöld.
Andri Ólafsson með boltann í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
ÍBV 0 - 1 Grindavík
0-1 Hafþór Ægir Vilhjálmsson

Grindvíkingar unnu topplið ÍBV 1-0 í rokleik í Vestmanneyjum í kvöld. Með sigrinum náðu Grindvíkingar að komast upp í níunda sætið og komast lengra frá fallsvæðinu.

Sterkur vindur var á annað markið í Eyjum í kvöld og veðrið gerði leikmönnum afar erfitt fyrir. Ef boltinn fór upp í loft greip vindurinn hann og Eyjamönnum gekk sérstaklega illa að halda boltanum á jörðinni.

Grindvíkingar léku með vindinn í bakið í fyrri hálfleik og komust yfir þegar Hafþór Ægir VIlhjálmsson skoraði eftir að hafa sloppið í gegn og farið framhjá Alberti Sævarssyni sem fór í misheppnað úthlaup.

Orri Freyr Hjaltalín misnotaði gott skallafæri áður en fyrri hálfleikurinn var úti og Tonny Mawejje brást einnig bogalistin á hinum enda vallarins.

Í síðari hálfleiknum reyndu Eyjamenn að setja meiri kraft í sóknina og minna fór fyrir sóknarleik Grindvíkinga.

Vörnin hjá Grindavík var hins vegar afar þétt og ÍBV náði ekki að skapa sér alvöru færi, Damen Justin Warlem komst næst því að skora en hann skallað yfir eftir hornspyrnu.

Í viðbótartíma vildu Grindvíkingar fá vítaspyrnu þegar Gilles Mbang Ondo féll í teignum eftir baráttu við Albert Sævarsson. Gunnar Jarl Jónsson, dómari leiksins, spjaldaði Ondo fyrir leikaraskap og það þýðir að hann verður í leikbanni í næsta leik gegn Breiðablik.

Grindvíkingar voru vel að sigrinum komnir en þeir spiluðu þéttan varnarleik og gáfu afar fá færi á sér. Ólafur Örn Bjarnason hefur komið mjög sterkur inn í vörnina og Grindavík hefur einungis fengið eitt mark á sig síðan hann byrjaði að spila.

Eyjamenn hafa oft spilað betur en í kvöld en liðið gæti misst toppsætið á morgun þegar Breiðablik mætr Haukum. Eyjamenn mæta síðan Fylki um næstu helgi og þurfa að leika betur þar til að ná sigri.

ÍBV: Albert Sævarsson, James Hurst, Rasmus Christiansen, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Matt Garner, Finnur Ólafsson, Andri Ólafsson, Damien Justin Warlem, Tonny Mawejje (Gauti Þorvarðarson 70), Eyþór Helgi Birgisson (Denis Sytnik 61), Tryggvi Guðmundsson.
Ónotaði varamenn: Elías Fannar Stefnisson, Yngvi Magnús Borgþórsson, Anton Bjarnason, Ásgeir Aron Ásgeirsson, Arnór Eyvar Ólafsson.

Grindavík: Óskar Pétursson, Alexander Magnússon, Ólafur Örn Bjarnason, Auðun Helgason, Jósef Kristinn Jósefsson, Scott Ramsay (Guðmundur Andri Bjarnason 88)f
, Orri Freyr Hjaltalín, Jóhann Helgason, Hafþór Ægir Vilhjálmsson (Óli Baldur Bjarnason 70), Grétar Ólafur Hjartarson (Ray Anthony Jónsson 61), Gilles Mbang Ondo.
Ónotaðir varamenn: Rúnar Dór Daníelsson, Loic Ondo, Gjorgi Manevski, Emil Daði Símonarson.

Aðstæður: Mikið rok á annað markið og kalt í veðri. Völlurinn í fínu standi.
Áhorfendur: 816
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Maður leiksins: Alexander Magnússon (Grindavík)
banner
banner