Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 28. nóvember 2010 20:51
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Jamie Carragher fór úr axlarlið - Frá í nokkrar vikur
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, verður frá keppni í einhverjar vikur en hann fór úr axlarlið í 2-1 tapinu gegn Tottenham í dag.

Carragher fór meiddur af velli undir lokin, rétt áður en Aaron Lennon skoraði sigurmark Tottenham.

,,Þetta er mjög slæmt. Það eru vonbrigði að þetta gerist í 450.leik hans í úrvalsdeildinni," sagði Roy Hodgson stjóri Liverpool.

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er einnig frá keppni í augnablikinu vegna meiðsla aftan í læri og Liverpool verður án hans og Carragher í næstu leikjum.
banner
banner
banner