Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. júlí 2014 12:08
Magnús Már Einarsson
Ben Griffiths í Tindastól (Staðfest)
Úr leik hjá Tindastóli.
Úr leik hjá Tindastóli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll hefur samið við Ben Griffiths en hann mun leika með liðinu í 1. deildinni út tímabilið.

Ben er 23 ára Englendingur sem spilar sem bakvörður eða á miðjunni.

Ben var hjá Colchester United og spilaði þar með unglingaliðum og varaliði, eftir það fór hann í háskóla í Bandaríkjunum og spilaði með Missouri State árin 2009-2012. Undanfarið hefur hann síðan spilað með Springfield Demize í Bandaríkjunum.

Ben er kominn með leikheimild með Tindastól og er væntanlegur til landsins á morgun en hann gæti spilað sinn fyrsta leik gegn KV á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner