Javier Mascherano segir að Angel Di Maria geti slegið í gegn hjá Manchester United.
Di Maria gekk í raðir Manchester United á 59,7 milljónir punda í vikunni en hann og Mascherano eru félagar úr argentínska landsliðinu.
Di Maria gekk í raðir Manchester United á 59,7 milljónir punda í vikunni en hann og Mascherano eru félagar úr argentínska landsliðinu.
,,Ég er mikill aðdáandi hans. Hann er á meðal tíu besta leikmanna í heimi," sagði Mascherano.
,,Auk þess að valda usla í vörn andstæðinganna þá getur hann varist og hlaupið mikið. Þú getur notað hann í mörgum stöðum á vellinum."
Athugasemdir