Kristján Flóki Finnbogason skoraði þrennu fyrir varalið FC Kaupmannahöfn í 5-2 sigri á Lyngby í gær.
Kristján Flóki skoraði eitt mark í fyrri hálfleik og bætti við tveimur í þeim síðari.
,,Ég og liðið spiluðum vel. Þegar færin koma þá verður þú að nýta þau," sagði Kristján Flóki í viðtali eftir leik.
Þessi 19 ára gamli leikmaður kom til FC Kaupmannahöfn frá FH í fyrra.
Kristján Flóki hefur spilað með U19 ára liði FCK en hann er nú byrjaður að spila með varaliðinu.

Hér að neðan má sjá mörk Kristján Flóka í leiknum og viðtal við hann eftir leik.
Athugasemdir