Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 31. maí 2016 08:00
Elvar Geir Magnússon
Osló
Arnór Ingvi: Sigur ekki aðalatriðið
Arnór Ingvi á æfingu Íslands í gær.
Arnór Ingvi á æfingu Íslands í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er skemmtilegt að koma hingað og fara að æfa," sagði Arnór Ingvi Traustason kantmaður Íslands við Fótbolta.net í Osló í gær en þar æfði íslenska landsliðið fyrir vináttuleik við Noreg á morgun. Það hefur verið nóg að gera hjá honum með félagsliði sínu í Svíþjóð en nú tekur landsliðið við.

„Seinustu vikur hafa verið annasamar en það er fínt að vera kominn hingað og geta bara hugsað um þetta," sagði hann.

„Við vitum eitthvað um norska liðið en svo eigum við eftir að fara betur yfir það. Við þurfum að fara yfir nokkra hluti sem við viljum fara yfir og það skiptir höfuðmáli, að vera eins vel undirbúinn og þú getur fyrir fyrsta leik á EM."

Arnór Ingvi var spurður út í mikilvægi þess að ná í sigra í síðustu æfingaleikjunum fyrir EM, núna gegn Noregi á morgun og Liechtenstein heima á mánudaginn.

„Ég held að það skipti meira máli að við náum þessu rétt sem við viljum gera rétt, og mikilvægt að fá það í gang og inn í kerfið hjá okkur sem við viljum bæta okkur í. Það skiptir höfuðmáli en auðvitað vill maður alltaf vinna hvern einasta fótboltaleik."

Arnór Ingvi samdi á dögunum við Rapid Vín í Austurríki og fer þangað eftir EM.

„Það eru spennandi og krefjandi tímar framundan eftir EM en þetta verður bara skemmtilegt. Þetta er stórt og flott lið, borgin er mjög fín og með mikla sögu. Þetta er mjög spennandi."

Athugasemdir
banner
banner