Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 27. ágúst 2016 18:16
Jóhann Ingi Hafþórsson
Spánn: Eibar vann Valencia - Sociedad lagði Osasuna
Pedro Leon skoraði í dag.
Pedro Leon skoraði í dag.
Mynd: Getty Images
Tveim leikjum var að ljúka í spænsku úrvalsdeildinni.

Annars vegar fór Real Sociedad í góða heimsókn til Osasuna þar sem Junami kom Sociedad yfir undir lok fyrri hálfleiks. Unai Garcia skoraði svo sjálfsmark í seinni hállfeik og var 2-0 sigur Sociedad staðreynd.

Hins vegar vann Eibar óvæntan sigur á Valencia þar sem Pedro Leon skoraði eina mark leiksins er hann fylgdi eftir vítaspyrnu sem hann brenndi.

Eibar er með þrjú stig eftir tvo leiki, á meðan Valencia hefur farið illa af stað og tapað báðum sínum leikjum hingað til. Sociedad er svo með þrjú stig eins og Eibar á meðan Osasuna hefur eitt.

Osasuna 0 - 2 Real Sociedad
0-1 Juanmi ('45 )
0-2 Unai Garcia ('81 , sjálfsmark)

Eibar 1 - 0 Valencia
1-0 Pedro Leon ('62 )
1-0 Pedro Leon ('62 , Misnotað víti)
Athugasemdir
banner
banner