Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 30. ágúst 2016 15:06
Magnús Már Einarsson
Mamadou Sakho hafnar WBA og Stoke
Mynd: Getty Images
Mamadou Sakho, varnarmaður Liverpool, hefur hafnað tilboðum frá WBA og Stoke.

Hinn 26 ára gamli Sakho er ekki inni í myndinni hjá Jurgen Klopp stjóra Liverpool.

Klopp vill senda Sakho á lán og Liverpool vonast til að leikmaðurinn finni nýtt félag áður en félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld.

Sakho hefur sjálfur hafnað tilboðum frá bæði WBA og Stoke.

Sakho var dæmdur í tímabundið leikbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í fyrra. Málið var hins vegar fellt niður og Sakho getur því byrjað að spila á nýjan leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner