Burnley 2 - 0 Watford
1-0 Jeff Hendrick ('38 )
2-0 Michael Keane ('50 )
1-0 Jeff Hendrick ('38 )
2-0 Michael Keane ('50 )
Síðasti leikur sjöttu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar fór fram í kvöld þegar Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley fengu Watford í heimsókn.
Heimamenn komust yfir þegar Jeff Hendrick skallaði hornspyrnu Steven Defour í netið skömmu fyrir leikhlé.
Defour lagði svo upp annað mark í upphafi síðari hálfleiks þegar Michael Keane skoraði.
Jóhann Berg lék nær allan leikinn í liði Burnley en hann var tekinn útaf þegar mínúta var eftir af uppbótartíma.
Burnley er nú komið með sjö stig og situr í 13.sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Watford er með jafnmörg stig en er í ellefta sæti.
Athugasemdir