Steinþór Freyr Þorsteinsson skrifaði undir samning við KA í gær en samkvæmt fregnum í Noregi er ekki víst að hann spili með KA næsta sumar.
Aftenbladed greinir frá því að það sé klásúla í samningi leikmannsins sem þýðir að hann getur verið áfram í Noregi, fái hann tilboð þaðan.
Talið er að framtíð hans komi ekki í ljós fyrr en í nóvember.
Steinþór kom til Sandnes Ulf frá Örgryte en fór þaðan til Viking. Hann fékk ekki að spila nóg þar svo hann var lánaður til Sandnes Ulf en nú er framtíð hans óljós.
Athugasemdir