Jose Mourinho, þjálfari Manchester United segir stuðningsmenn félagsins þá bestu sem hann hefur séð.
United tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins í gær með 1-0 sigri á grönnum sínum í Manchester City en Juan Mata skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik.
Sigurinn var ansi mikilvægur fyrir United sem tapaði 4-0 fyrir Chelsea um helgina.
„Stuðningsmennirnir eru ótrúlegir, ég hef aldrei séð annað eins," sagði hann við Sky Sports.
„Ást fólksins á félaginu hættir ekki þó við töpuðum gegn Chelsea og þó síðustu þrjár leiktíðar hafa verið erfiðar," sagði Mourinho.
Athugasemdir