Hull City hefur sent frá sér opinbera yfirlýsingu á heimasíðu félagsins þar sem staðfest er að líðan Ryan Mason er stöðug.
Eins og við greindum frá áðan var Ryan Mason þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir slæman árekstur við Gary Cahill í leik Chelsea og Hull fyrr í dag.
Mason hefur nú undirgengist aðgerð á St. Mary spítalanum í Lundúnum og er líðan hans stöðug. Hann mun dvelja á sjúkrahúsinu næstu daga.
„Allir hjá félaginu vilja þakka skjót og vönduð vinnubrögð allra þeirra sem komu að aðhlynningu Ryan Mason," segir í yfirlýsingunni en frekari upplýsingar verða birtar á morgun.
Athugasemdir