Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 19. febrúar 2017 11:30
Kristófer Kristjánsson
„John Stones þarf Vincent Kompany"
John Stones saknar Vincent Kompany ef marka má orð Rio Ferdinand
John Stones saknar Vincent Kompany ef marka má orð Rio Ferdinand
Mynd: Getty Images
John Stones, varnarmaður Man City, hefur átt erfiða byrjun hjá félaginu eftir að hafa verið keyptur frá Everton í sumar á 47 milljónir punda, en hann varð næst dýrasti varnarmaður heimsins.

Þrátt fyrir góða byrjun hefur Stones gerst sekur um vond mistök á tímabilinu við hlið Nicolas Otamendi í vörninni, en fyrirliði liðsins, Vincent Kompany, hefur aðeins byrjað fimm leiki vegna meiðsla.

Rio Ferdinand, fyrrum varnarmaður Man Utd, segir að Stones þurfi reynslu og gæði Kompany sér við hlið á meðan hann er að læra en hann er aðeins 22 ára.

„Stones hefur greinilegt verið sagt að taka áhættur, þannig spila lið Guardiola," sagði Ferdinand við ESPN.

„En þetta snýst líka um að finna rétt jafnvægi og taka rétt ákvarðanir undir pressu. Stones þarf Vincent Kompany sér við hlið vegna þess að enskir hafsentar hafa ekki næga reynslu til að spila svona."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner