Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. mars 2017 15:32
Magnús Már Einarsson
Myndband: Rúnar Már skoraði beint eftir miðju
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði glæsilegt mark á æfingu með svissneska liðinu Grasshoppers í dag.

Rúnar Már hefur verið fastamaður í íslenska landsliðshópnum undanfarin ár en hann var hins vegar ekki valinn í leiki gegn Kosóvó.

Því er Rúnar við æfingar í landsleikjahléinu hjá félagsliði sínu í Sviss þessa dagana.

Í dag var skipt í tvö lið og spilað á heilan völl á æfingu hjá Grasshoppers.

Rúnar skoraði þá með skoti beint eftir miðju en markvörðurinn var ekki nálægt því að verja.

Skotið má sjá hér að neðan.

Goal from today's training 🎯

A post shared by Runar Mar S Sigurjonsson (@runarmar) on


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner