Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. mars 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Ánægður sama hvað Zlatan gerir
Zlatan hefur átt magnað tímabil.
Zlatan hefur átt magnað tímabil.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segist styðja ákvörðun Zlatan Ibrahimovic, sama hvort leikmaðurinn ákveði að vera áfram hjá United eða fara annað.

Hinn 35 ára gamli Zlatan getur framlengt samning sinn við United um eitt ár en hann íhugar nú framtíð sína.

„Ég er rólegur og bíð eftir ákvörðuninni. Ef hann ákveður að vera áfram og er ánægður með það þá erum við ánægðir. Ef hann ákveður að fara og prófa nýja áskorun þá verð ég líka ánægður fyrir hans hönd," sagði Mourinho.

„Hann hefur gert mikið á þessu tímabili en manneskjan sjálf er mikilvægari en leikmaðurinn og liðið."

„Ef hann ákveður að fara til að vera með fjölskyldu sinni á öðrum stað, þá verður það að vera þannig."

Athugasemdir
banner
banner