Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 30. mars 2017 22:32
Hafliði Breiðfjörð
Tóti Dan: FH liðið er stórkostlegt
Þórhallur Dan Jóhannsson.
Þórhallur Dan Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta FH lið er bara frábært, þeir eru með frábæra leikmenn, spila ótrúlega skemmtilega og eru með besta þjálfarann á landinu í sínu liði," sagði Þórhallur Dan Jóhannsson þjálfari Gróttu eftir 1-3 tap gegn FH í Lengjubikarnum í kvöld.

Lestu um leikinn: Grótta 1 -  3 FH

„Það var gaman fyrir mína stráka að spreyta sig á móti þeim og sjá hver munurinn er á milli Gróttu og FH. Hann er töluverður en þeir lögðu mikið á sig og ég er ótrúlega stoltur af mínum drengjum í dag þó við höfum tapað 3-1," bætti hann við.

„Við vörðumst og þeir sóttu en það var gaman að skora eitt mark. Við vorum að leggja hjartað og lungun á bakvið þetta en FH liðið er stórkostlegt. Sérstaklega þegar þeir náðu að spila sinn bolta þá líta þeir afskaplega vel út. Þetta er liðið sem flest lið eiga að bera sig við, þeir eru Íslandsmeistarar og við þurfum væntanlega að reyna að fara í sömu gæði og þau. Þetta er vegferðin hjá okkur, við erum að byrja að stíga skrefin í áttina að þessu en það eru helvíti löng skref eftir."

Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner