Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. ágúst 2017 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Liverpool ætti að selja Coutinho og kaupa Diego Costa"
Coutinho er duglegur að hjóla.
Coutinho er duglegur að hjóla.
Mynd: Getty Images
Liverpool ætti að selja Philippe Coutinho og nota peninginn sem þeir fá fyrir söluna á honum til að kaupa Diego Costa frá Chelsea. Þetta segir Andy Townsend, sem er fyrrum leikmaður Chelsea. Townsend starfar núna sem sérfræðingur um fótbolta í Bretlandi.

Coutinho hefur beðið um sölu frá Liverpool, en Barcelona hefur gríðarlegan áhuga á honum. Liverpool hefur hafnað tveimur tilboðum frá Barcelona í Brasilíumanninn.

Liverpool vill ekki selja Coutinho, en það lítur út fyrir að það verði óumflýjanlegt. Townsend hvetur Liverpool til að selja Coutinho.

„Ég myndi selja Coutinho," sagði Townsend. „Ekki vegna þess að mér finnst hann ekki góður leikmaður, mér finnst hann magnaður leikmaður, en Liverpool þarf að styrkja vörnina hjá sér og þeir þurfa líka sóknarmann," sagði hann enn fremur.

„Það væri gott fyrir þá að skipta Coutinho út fyrir leikmann sem getur spilað sem nía og fyrir varnarmann."

„Ef Liverpool myndi selja Coutinho ef Chelsea væri reiðbúið að selja Diego Costa - þeir seldu Nemanja Matic til Manchester United - er Liverpool þá betra fyrir vikið? Já."
Athugasemdir
banner
banner