Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 22. ágúst 2017 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benitez: Kannski erum við ekki tilbúnir
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur ekki byrjað ensku úrvalsdeildina eins og þeir höfðu vonast eftir. Þeir hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

Rafa Benitez kom liðinu upp úr Championship-deildinni í fyrstu tilraun, en hann hefur ekki haft úr miklu að moða á leikmannamarkaðnum í sumar. Hann hefur ekki fengið fjármagn.

Benitez hefur efasemdir um það hvort Newcastle liðið sem hann er með í höndunum núna sé tilbúið í ensku úrvalsdeildina.

„Reynsla mín hefur kennt mér það að þér verður refsað fyrir mistökin sem þú gerir í ensku úrvalsdeildinni," sagði Benitez eftir 1-0 tap gegn Huddersfield um síðastliðna helgi.

„Kannski erum við ekki tilbúnir í ensku úrvalsdeildina."

Næsti leikur Newcastle er gegn West Ham næsta laugardag.
Athugasemdir
banner
banner